Gleðilegt nýtt hár!
Örugg hárígræðsla í Tyrklandi
Við byggjum á persónulegri reynslu í hárígræðslu
Eftir að hafa gengið sjálfir í gegnum hárígræðsluferðina til Istanbúl vorum við sammála um eitt: þetta var mun stærra og vandaðara ferli en við höfðum gert okkur grein fyrir í upphafi. Ekki bara aðgerðin sjálf, heldur allt í kringum hana – undirbúningurinn, fagmennskan, umönnunin og eftirfylgnin.
Í framhaldi af þessari reynslu ákváðum við, í sameiningu við tyrknesk-íslenska vin okkar Husamettin Kaymaz, að bjóða upp á ráðgjöf og aðstoð fyrir þá sem eru að velta hárígræðslu fyrir sér. Ekki af því að allir eigi að fara í slíka aðgerð – heldur af því að þeir sem gera það eigi að hafa aðgang að heiðarlegum upplýsingum, raunverulegri reynslu og öruggu ferli.
Einar, Baldur og Husamettin.
Ferlið frá A-Ö
Ef þú ert að hugsa um hárígræðslu, þá skiptir máli hverjum þú treystir og hvernig ferlið er byggt upp. Með Gefur Útlit færðu persónulega ráðgjöf hér heima og aðgang að alþjóðlegri sérþekkingu í samstarfi við EsteFirst í Istanbúl – klíníku sem hefur sérhæft sig í hárígræðslum síðan 2008.
Fyrsta skrefið
Ráðgjöf á netinu. Við ræðum markmið, heilsu og væntingar. Þú sendir myndir af hárinu og færð fyrstu ráðleggingar.
Ferðin til Istanbul
Ferðalagið til Istanbul fyrir aðgerðina er skipulagt af Gefur í samráði við þig. Við sníðum ferðina að þínum þörfum.
Aðgerð bókuð
Gefur bókar aðgerð, innifalið er gisting og þú bókar flug fyrir þig. Þú færð ítarlegar upplýsingar um hvernig er best fyrir þig að haga undirbúningi miðað við stöðuna á þínu hári eftir viðtöl.
Dagur Aðgerðar
Dagurinn rennur upp. Öll undirbúningsvinna skilar sér í skilvirkri og árangursríkri aðgerð og gerir ferlið þægilegra.
Eftirfylgni og nýtt útlit!
Gefur veitir þér ráðgjöf um hvernig best er að haga málunum til að ná sem bestum árangri. Vikurnar eftir aðgerð eru mikilvægar og því er góð handleiðsla gulls ígildi!
Okkar reynsla
Okkur leið ekki eins og verið væri að „smala okkur í gegn“, heldur var farið einstaklingsbundið í hlutina. Okkur leið bókstaflega eins og við værum handgerð vara – þar sem hvert smáatriði skipti máli. Það skapaði traust, ró og öryggi.
Okkar reynsla var mjög góð og við erum rosalega sáttir við árangurinn.
Einar Bárðar
Einar var helst með þynningu á hári fremst á kolli og vildi bæta aðeins í. Hérna er mynd frá mars 2025.
Hér er Einar sex mánuðum seinna og hárið orðið fyllra að framan. "Þetta gekk ægilega vel hjá mér".
Baldur Rafn
Baldur Rafn er hér í maí 2025. Baldur Rafn vildi bæta í kollvikin og þétta hárið á toppnum.
Fjórum mánuðum seinna er brúskurinn orðinn þéttur og fínn og Baldur Rafn var afskaplega ánægður með útkomuna.
Algengar spurningar
Upp komu margar spurningar þegar við fórum í gegnum ferlið sjálfir og eftir vel heppnaða aðgerð og mikla umræða eftir á, höfum við fengið fleiri spurningar frá áhugasömum einstaklingum
-
Hárígræðsla með Gefur & EsteFirst - Hvað er hárígræðsla?
Hárígræðsla er varanleg lausn við hárlosi þar sem heilbrigðir hársekkir eru teknir af svæðum þar sem hárið er þétt (yfirleitt aftan á höfði) og græddir í hárlaus eða þynnri svæði. Aðgerðin er framkvæmd með nútímalegum örskurðaðferðum sem tryggja náttúrulegan árangur.
-
Hvernig er samstarf Gefur og EsteFirst?
Gefur sér um ráðgjöf, undirbúning og eftirfylgd hér heima, en EsteFirst framkvæmir aðgerðina í Istanbúl. Skjólstæðingar fá þannig bæði persónulega þjónustu á Íslandi og aðgang að alþjóðlegri sérþekkingu í hárígræðslu.
-
Hvaða aðferðir býður EsteFirst upp á?
EsteFirst býður upp á:
- FUE (Follicular Unit Extraction)
- FUE Sapphire, þróaða útgáfu FUE með safír-blöðum
- DHI (Direct Hair Implantation)
Val á aðferð fer eftir hárgerð, hárlosi, væntingum og mati sérfræðinga.
-
Hver er munurinn á FUE, FUE Sapphire og DHI?
EsteFirst býður upp á:
- FUE: Hársekkir eru teknir einn í einu og græddir í undirbúin svæði.
- FUE Sapphire: Notar safír-blöð til að opna nákvæmari og mjórri rásir, sem getur skilað meiri þéttleika og hraðari bata.
- DHI: Hársekkir eru græddir beint í hársvörðinn með sérstöku tæki (Choi penna) án þess að opna rásir fyrirfram. Hentar vel þegar markmiðið er mikill þéttleiki.
-
Er hárígræðsla varanleg lausn?
Já. Hársekkirnir sem eru græddir eru teknir af svæðum sem eru ekki viðkvæm fyrir hárlosi og halda því eiginleikum sínum til framtíðar.
-
Myndast ör eftir aðgerð?
Við FUE, FUE Sapphire og DHI aðferðir myndast engin sýnileg ör. Aðgerðirnar eru framkvæmdar án hefðbundinna skurða eða sauma.