Gefur - Gefandi Ráðgjöf merki Gefur - Gefandi Ráðgjöf merki

EsteFirst er fyrsta flokks hárígræðslu klíník

Gefur vinnur með EsteFirst, alþjóðlega viðurkenndri klíníku sem hefur sérhæft sig í hárígræðslum frá árinu 2008. Með reyndu teymi lækna og sérfræðinga hefur EsteFirst hjálpað þúsundum einstaklinga að endurheimta hár og sjálfstraust.

EsteFirst Klíníkin - hópmynd
Gefur - EsteFirst ráðgjöf. Baldur Rafn ræðir við Dr. Veli.

Reynsla og sérþekking í hárígræðslu

EsteFirst leggur ríka áherslu á heildstæða þjónustu, þar sem sjúklingum er veitt fagleg ráðgjöf og eftirfylgd fyrir, á meðan og eftir hárígræðsluferlið. Markmiðið er að tryggja öryggi, þægindi og jákvæða upplifun á öllum stigum meðferðarinnar.

Til að ná sem bestum árangri nýtir EsteFirst nýjustu og fullkomnustu lækningatæki sem völ er á, ásamt sérþekkingu og mikilli reynslu teymisins. Allt ferlið, frá fyrstu áætlanagerð til framkvæmdar, er útskýrt á skýran og skiljanlegan hátt fyrir hverjum einstaklingi. Áhersla er lögð á bæði framúrskarandi árangur og vandaða upplifun.

Hárígræðsla

Nýjasta DHU tækni

Skegg ígræðing

Þetta eru sérfræðingarnar á EsteFirst

Gefur ráðgjöf - Veli hárígræðsluæknir

Dr. Veli Aslan

Yfirlæknir

Dr. Veli er höfundur aðferðarinnar með langa reynslu í aðgerðum og hefur starfað við hárígræðslur síðan 1998.

Hann ber ábyrgð á aðferðinni og ferlinu sem klínikin vinnur eftir í dag. Hann býr að áratuga reynslu og hefur hjálpað tugþúsundum einstaklinga að endurheimta hárið á öruggan og faglegan hátt. Hann þróaði sérstaklega þá aðferð sem EsteFirst Clinic notar, með áherslu á náttúrulegan árangur og hraða eftirheimt.

Gefur ráðgjöf - Göksal hárígræðsluæknir

Göksal Öztürk

Sérfræðingur

Göksal Öztürk er einn af fremstu sérfræðingum Tyrklands á sviði hárígræðslu og hefur starfað í faginu í um tvo áratugi.

Hann er stofnandi og yfirmaður lækninga hjá EsteFirst Clinic, þar sem hann hefur veitt þúsundum einstaklinga persónulega ráðgjöf og meðferð til að endurheimta sjálfstraust og náttúrulegt útlit með nútímalegri hárígræðslutækni.

Traust og vel þróað ferli

Einar og Baldur, stofnendur Gefur, fóru sjálfir til EsteFirst og hittu Dr. Veli í eigin persónu þegar þeir fóru í sínar aðgerðir. Þeir sáu strax hversu mikið er lagt upp úr trausti, fagmennsku og nærgætni í öllum samskiptum – og sú reynsla varð kveikjan að samstarfinu. Við viljum einmitt hjálpa öðrum að upplifa það sama.

Þó Dr. Veli sé aðalhöfundur aðferðarinnar og yfirlæknir klíníkarinnar, þá er það Dr. Göksal Özturk sem framkvæmir aðgerðirnar sem skjólstæðingar Gefur fara í. Hann er reyndur sérfræðingur með frábæran árangur, og vinnur nákvæmlega eftir aðferðunum sem Dr. Veli hefur þróað.

  • Deildu þessu: